3.11.05

Ég held að ég þurfi að

fara versla mér svona skammdegisþunglyndisljós. Ég þoli ekki skammdegið. Segi nú kannski ekki að ég verði þunglyndur en það fer nærri því. Eina ljósið í myrkrinu eru jólin en þá er alltaf svo gaman. Það eru allir svo góðir vinir á jólunum, svo er alltaf spilað svo mikið og þá getur maður líka fengið sér jólabjór. Jafnvel spilað og fengið sér jólabjór um leið það er það skemmtilegasta.

En nú er farið að styttast ískyggilega í prófin en þau byrja eftir næstu viku. Það er ekkert elsku mamma lengur og ég er búinn að díla við einn kunningja að taka mig í aukatíma í stærðfræðinni. Það ætti aðeins að hjálpa og vonandi næ ég kannski í fyrstu eða annarri tilraun. Það versta er að ég hef verið frekar slappur undanfarið og aðeins slakað á í skólanum um leið. En nú er bara lærdómur framundan og ekkert fyllerí og engin vinna. Ég hef líka gott af því aðeins að slaka á í bjórnum.

hafið það gott þangað til næst, BT

3 Comments:

Blogger GI Jane said...

já ég er nú ekki þekkt fyrir að taka upp svipuna, en hún verður svo sannarlega uppá borðum í skipasundinu næstu vikurnar!! þú ert búinn að standa þig alveg svakalega vel í skólanum hingað til og það er ekki í boði að klúðra því! og hananaú

knúsíknús

10:03 AM  
Blogger BT said...

þakka þér fyrir það. það er líka alveg á hreinu að mér veitir ekkert af þessari helvítis svipu svo ég hvet þig eindregið til að nota hana sem mest. REKTU MIG TIL A LÆRA !!

2:30 PM  
Anonymous Ausa PRIK ;) said...

Gangi þér vel í prófunum!

Ég sendi hlýja strama í næstu viku ;)

Rosalega ertu samt heppinn að bráðum ertu bara búinn í prófum! og það er ekki einu sinni kominn desember!

4:57 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home