Langþráð vísó framundan
og prófin eru búin. Kláraði seinasta prófið í morgun með að reikna fram og til bara 1 og 0 í base 2. Setja saman rökrásir úr formúlum, sanntöflum og eftir að hafa snúið öllu við með de Morgan. En allavega ég er þokkalega sáttur við þetta gengi í prófunum og get ekkert verið að kvarta. Það verður að gaman að sjá hvað ég fæ útúr þessu öllu, nema kannski stærðfræðinni. Svo er ég ekki búinn að gera neitt annað en að halda uppá þetta allt saman síðan ég kláraði, ég t.d. skrópaði í stærðfræði, fór á select og fékk mér SVEITTA pulsu, lagði mig í 4 klukkutíma og er á leiðinni að opna mér bjór sem ég hef haft mikinn augastað á alla vikuna inni í ísskáp. Svo rúsínan í pylsuendanum er vísó á eftir og svo októberfest niðrí HÍ. Ég get hreinlega ekki beðið og enginn annar bróðir minn ætlar að fjölmenna með mér og mig grunar það nú að við munum ekki koma til með að láta okkar eftir liggja í því þamba FRÍA bjórinn. Það er gott og gaman að drekka bjór!!
Annars hef ég ekkert annað að segja nema gleðilega októberfest, BT
Annars hef ég ekkert annað að segja nema gleðilega októberfest, BT

2 Comments:
gleðilega októberfest já og skemmtu þér vel í kvöld, á meðan ætla ég að eiga kvolití tæm með sjálfri mér og múttu og pápa :)
þú getur kannski tekið ólöfu með þér í vísó, haft hana bara á öxlinni því hún er svo DUGLEG!
það væri nú gaman að taka hana með, góð hugmynd ég ætla að leggja hana fyrir nefnd.
Sendu inn athugasemd
<< Home