4.10.05

2 dán end 2 tú gó

já ég fór í stærðfræði í gær og hélt að ég væri nú bara nokkuð með hana á hreinu. Ég var meira að segja nokkuð vongóður og glaður á leiðinni í prófið sem ég man ekki hvenær gerðist síðast... en svo kom það jú fyrsta blaðsíðan ég var nú með hana á hreinu en restin var eitthvað sem var ekki í neinum undirbúningsdæmum. Ég viðurkenni það alveg að það var búið að fara í þetta allt en það var enga áherslu búið að leggja á þetta að mér fannst. Svo voru þarna raddir sem heyrðust eftir prófið að þetta hefði verið fjandi þungt. En ég get sossum ekkert verið að kenna öðrum um mitt klúður og ég veit núna bara hvað ég þarf að læra betur fyrir lokaprófið. Svo var ég í prófi í morgun og það gekk vonum framar :D það er hægt að orða það þannig að mér hefur aldrei gengið jafnvel í prófi í HR.

Allavega er maður bara núna kominn heim og er að pæla í að breyta svefnherberginu þannig að skrifborðið vísi út að glugga. Svo maður geti verið eins og rithöfundur í leit að innblæstri. Það held ég að geri manni bara gott. Svo er að halda áfram að læra til að ná restinni svo ég geti haldið höfði mínu hátt.

Jæja ég bið að heilsa í bili, yfir og út.
BT

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sko þegar ég leita að innblæstri þá treð ég puttunum uppí rassgatið á mér, hoppa á einum fæti upp og niður laugaveginn, sný mér í hringi og segi: "ég er mamma mín" í sífellu.

Ef þetta virkar ekki þá skrifa ég bara einhverja ömurlega unglingabók sem allir unglingar elska.

kv. Þorgrímur Þráins

4:04 PM  
Anonymous Krabbameins læknirinn said...

Þorgrímur minn þú gleymir vindlunum... það vita allir að þú reykir

10:09 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home