Þá er komið aððí
fyrsta prófið er á mánudaginn og er það stærðfræðin. Það lítur aðeins betur út heldur en í fyrra þó að þetta sé helv... erfitt. Svo að nú þarf að læra alla helgina og það þýðir náttlega að bjórinn verður bara þarna einhversstaðar í hyllingum bak við bækurnar. Svo fer öll vikan í að læra því ég fer í 4 próf sem dreifast jafnt yfir vikuna. Þetta verður bara gaman að komast að því hvar maður stendur í þessu öllu.
Annars horfðum við Jane á Lost 02/02 í gærkvöldi og þá komst ég að því hve svakalega húkkd blessunin er á þessu án þess að fara nánar útí það. En allavega nú er að fara að reikna bið að heilsa í bili og þið sem ætlið að skemmta ykkur um helgina takið einn auka fyrir mig og einn auka fyrir Ísland!!! (að taka einn auka fyrir Ísland er einkahúmor sem ég nenni ekkert að skýra út fyrir þeim sem ekki skilja.)
BT

3 Comments:
Skal taka einn fyrir þig ... ekkert mál. En þá verður að lofa að læra alla helgina og vera duglegur því annars kem ég og rukka þig um hann seinna.
Gangi þér vel í prófunum!
Hugsi hugsi til þín ;)
mikið rosalega ertu tæpur á geði. þú varst ekkert minna spenntur en ég yfir að horfa á lost, og þú ert sjálfur sjónvarpsjúkur en nærð samt alltaf að láta mig líta illa út. nú segi ég bara: hættu að fela sjónvarpssýki þína á bak við mína, komdu út úr skápnum og vertu stoltur af því sem þú ert!!! jíhhhaaaaaa
og gangi þér rosa vel í dag :* knúsi knúúúúúús
Sendu inn athugasemd
<< Home